10.5.2009 | 16:07
Þjóðlegt-Val í körfu
Þjóðlegt nesti er í boði og allt framleitt hérna heima á Ferjubakka.
Við erum með í álegg; hangikjöt af veturgömlum sauð (heimareykt), reyktan silung veiddan í Hvíta (af okkur fjölskyldunni), rúllupylsu af heimafengnu kjöti (þó ekki heimaslátruðu), kæfu gerða úr heimafengnu kjöti, tómata og gúrkur al íslenskt framleitt í héraðinu. Íslenskt-smjör.
Við erum með í brauði: Flatkökur heimabakaðar eftir gamalli fjölskyldu uppskrift. Skonsur (einnig fjölskyldu uppskrift), afabrauð (hveitibrauð með lyftidufti) sem er gamalt sveitabrauð og föðuramma mín kallaði alltaf í mín eyru afabrauð en heitir í raun allt annað en ég ákvað að halda þessu nafni enda mér kært. Heilsubrauð (val bakarans hverju sinni). Rúgbrauð líka bakað eftir gamalli uppskrift úr fjölskyldunni.
Við erum með í sætabrauði: Hjónabandssælu mömmu (fjölsk. uppskr.), skúffuköku með kókosmjöli, jólaköku, og rúsínan pylsuendanum er ástarpungar einsog móðuramma mín gerði þá og var fræg fyrir innan fjölskyldunnar.
Hægt er að panta kaffi og eða heitt súkkulaði með í nestiskörfunum.
Hægt er að panta körfur sem þarf að skila að nestisferð lokinni, eða pakka og þá þarf engu að skila en er þá ekki með hnífapör, diskar eða drykkjaföng.
Hægt er að velja sjálfur í pakka/körfur en líka er hægt að fá fyrirfram samansettar körfur. Má þar nefna Bændakörfu, rómantískakörfu, fjölskyldukörfu, heilsukörfu og fleira.
allar upplýsingar og pantanir er hægt að nálgast á ferjubakki2@emax.is og í síma 860-1080.

Höfundur
Ólöf María Brynjarsdóttir
Er fjárbóndi í Borgarfirði, formaður Lifandi Landbúnaðar grasrótarhreyfingu kvenna í dreifbýli. Framleiði og sel nestiskörfur beint frá býli. Pantanir og upplýsingar á ferjubakki2@emax.is og í síma 860-1080
Tenglar
Áhugavert
- Landsamband Sauðfjárbænda LS
- Lambakjöt Gott Íslenskt lambakjöt
- Morgunblaðið Mogginn
- Loft Orka Borgarnesi Rótgróið fyrirtæki
- Borgarbyggð Sveitarfélagið mitt
- Skessuhorn Málgagn vestlendinga
- Bændablaðið Málgagn Íslenskra bænda
- Lifandi Landbúnaður Grasrótarhreyfingin Lifandi Landbúnaður
- Bændasamtök Íslands B.Í
- Borgir Borgarfirði foreldrar mínir
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Komdu sæl Ólöf María.
Ég var að lesa pistlana þína og kynna mér framtakið á Ferjubakka 2. Ég óska þér til hamingju og vona að allar þínar körfur gangi vel í landsmenn.
Bestu kveðjur í gömlu sveitina mína, eva
Eva Benjamínsdóttir, 11.5.2009 kl. 16:27
Mér finnst þetta æðislegt Olla mín :) Ég kem sko í sumar ef að ég fæ einhvern í heimsókn, svo er ekki langt fyrir mann að fara í heyskapnum ef fólk er orðið svangt:)
Margrét Hildur Pétursdóttir, 14.5.2009 kl. 11:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.